Á aðalfundi Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, var sitjandi stjórn endurkjörin, aðal- og varamenn.

Áður var Franz Árnason forstjóri Norðurorku, einróma endurkjörinn formaður samtakanna til næstu tveggja ára, en hann var áður kjörinn formaður á aðalfundi samtakanna árið 2007, einnig til tveggja ára.

Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum á sínum fyrsta fundi eftir aðalfund, en hana skipa því áfram:

  • Franz Árnason, Norðurorku, formaður
  • Friðrik Sophusson, Landsvirkjun
  • Hjörleifur B. Kvaran, Orkuveitu Reykjavíkur
  • Júlíus Jónsson, Hitaveitu Suðurnesja
  • Páll Pálsson, Skagafjarðarveitum
  • Tryggvi Þór Haraldsson, Rarik
  • Þórður Guðmundsson, Landsneti

Varamenn:

  • Dagur Jónsson, Vatnsveitu Hafnarfjarðar
  • Guðmundur Davíðsson, Hitaveitu Egilsstaða og Fella
  • Kristján Haraldsson, Orkubúi Vestfjarða