Sömu menn bjóða sig fram til setu í stjórn Straums fjárfestingabanka [ STRB ] og á síðasta tímabili, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Varastjórnin breytist þó. Baldur Örn Guðnason, fyrrverandi forstjóra Eimskipafélagsins, býður sig ekki aftur fram, Vilhjálmur Þorsteinsson kemur í hans stað.

Aðalfundur fjárfestingabankans verður haldinn næsta þriðjudag.

Í framboði eru:

Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður. Birgir Már Ragnarsson Guðmundur Kristjánsson Friðrik Hallbjörn Karlsson James Leitner

Varamenn: Edgar Alden Edmons Vilhjálmur Þorsteinsson Heiðar Már Guðjónsson Jóhann Páll Símonarson Þórunn Guðmundsdóttir