Vísitala byggingakostnaðar breyttist ekkert á milli mánaða, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 0,1%.

Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,5% en kostnaður vegna véla, flutnings og orkunotkunar hækkaði um 0,8%.  Vísitalan gildir í mars 2014.