Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir (stýrivextir) bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5,75%. Þetta var ákveðið á fundi nefndarinnar nú í morgun.

Bankinn segir að hagvöxtur hafi verið minni en áætlaði hafi verið í nóvemberspá bankans, eða 4,1% í stað 4,6%. Horfur séu á svipuðum hagvexti í ár, eða 4,2%. Þetta er 1% meiri vöxtur en spáð hafði verið í nóvember og skýrist frávikið af horfum um meiri vöxt einkaneyslu en þá var gert ráð fyrir enda útlit fyrir að laun hækki meira, atvinna vaxi hraðar og verðbólga verði minni. Bankinn áætlar að framleiðsluslaki hafi horfið á sl. ári og nú sé útlit fyrir vaxtandi spennu.

Verðbólga undir spám

Hækkun launa langt umfram verðbólgumarkmið og framleiðnivöxt eykur verðbólguþrýsting en alþjóðleg þróun orku- og hrávöruverðs og gengisþróun krónunnar vega á móti. Verðbólga hefur verið minni en spáð var í nóvember og horfur eru á að svo verði áfram fram á næsta ár.

Bankir bendir á að verðhjöðnun á alþjóðlegum mörkuðum gæti stöðvast og snúist við á næstu misserum, en samkvæmt alþjóðlegum spám er búist við að þetta gerist þegar líða tekur á þetta ár. Gert er ráð fyrir að verðbólga hér á landi verði komin yfir 3% í árslok og í 4% ári siðar.

Alþjóðleg verðlagsþróun og sterk króna hefur veitt svigrúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauðsynlegt. Miðað við spá Seðlabankans er þó líklegt að auka þurfi aðhald peningastefnunnar á næstu misserum í ljósi vaxandi innlends verðbólguþrýstings.