Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað á fundi sínum í morgun að halda meginvöxtum (stýrivextir) bankans óbreyttum. Meginvextir bankans verða því áfram 5,75%.

Í rökstuðningi sínum segir bankinn að samkvæmt áætlun Hagstofu Íslands þá var hagvöxtur 4% í fyrra, en það var mjög nærri febrúarspá bankans. Vísbendingar það sem af er ári gefa jafnframt til kynna að horfur fyrir þetta ár hafi lítið breyst og að útlit sé einnig fyrir kröftugan hagvöxt á næstu misserum.

Verðbólga mældist 2,2% í febrúar og hefur aukist um eina prósentu frá því á sama tíma fyrir ári. Sem fyrr vegast þar á innlendur verðbólguþrýstingur og innflutt verðhjöðnun á alþjóðlegum vörumörkuðum. Bankinn segir að áfram er útlit fyrir að verðbólga verði undir markmiði fram eftir ári en horfur eru óvissar, m.a. varðandi innflutningsverðlag.

Bankinn segir einnig að alþjóðleg verðlagsþróun hafi veitt svigrúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauðsynlegt. Spá bankans er hins vegar óbreytt a það þurfi að auka aðhald peningastefnunnar frekar á næstu misserum í ljósi vaxandi innlends verðbólguþrýstings.