Peningastefnunefnd hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 6%. Þetta er í takt við spár greiningaraðila.

Í rökum nefndarinnar fyrir vaxtaákvörðuninni segir að hagvöxtur virðist hafa verið heldur minni á fyrsta fjórðungi ársins en spáð var í Peningamálum í maí. Of snemmt sé hins vegar að fullyrða að hagvaxtarhorfur fyrir árið í heild hafi versnað sakir þess að hagvaxtartölur eru oftar en ekki endurskoðaðar upp á við frá fyrstu tölum og nýjustu vísbendingar um eftirspurn benda til þess að efnahagsbatinn sé í stórum dráttum í samræmi við spá bankans.

Á móti segir peningastefndin að verðbólguhorfur hafi lítið breyst frá maíspánni. Verðbólga hefur minnkað á síðustu mánuðum og mælist nú 3,3%. Undirliggjandi verðbólga og verðbólguvæntingar hafa einnig hjaðnað en eru þó enn yfir verðbólgumarkmiði bankans. Þá hafi litlar breytingar orðið á gengi krónunnar frá síðasta fundi peningastefnunefndar. Stefnan um viðskipti Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði sem nefndin hafi markað virðist hafa stuðlað að auknum stöðugleika krónunnar og er því til þess fallin að veita verðbólguvæntingum betri kjölfestu og stuðla að hraðari hjöðnun verðbólgu en ella.