Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir.

Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóð en vaxtaákvörðun sjóðsins byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 6. mars 2009 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,47%.

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.

Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 5,62 milljarðar króna í fyrrnefndu útboðin en ákveðið var að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf:

HFF150434 að nafnvirði 835 milljónir króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 5,09%n og  HFF150644 að nafnvirði 2,035 milljarðar króna, vegin án  ávöxtunarkrafa þóknunar er 4,79%

Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 4,88% og 4,89% með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 12. mars 2009.