Íbúðalánasjóður hefur í kjölfarið útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir Íbúðalánasjóðsins verði óbreyttir, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Samkvæmt 3.. mgr. 21.gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir því á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 14. september, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa er 4,26%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna varasjóðs 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,25%, samtals 0,70%, segir í tilkynningunni.

Útlánsvextir Íbúðalánasjóðsins verða því 4,95%. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25% lægri vöxtum eða 4,70%.