Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir.

Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,5% en 5,0% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.

Þetta kemur fram í tilkynningu sjóðsins til Kauphallarinnar en vaxtaákvörðunin byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var í gær ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa.  Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,85%

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,30%, vegna útlánaáhættu 0,35% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.

Í útboðinu í gær bárust tilboð að nafnvirði 10,3 milljarðar króna. Ákveðið var að taka tilboðum fyrir um 7,2 milljarða í eftirtalin íbúðabréf:

HFF150224 að nafnvirði 1,810 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,77%, HFF150434 að nafnvirði 2,170 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,79% og HFF150644 að nafnvirði 3,160 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,77%.