Íbúðalánasjóður hefur ákveðið í kjölfar útboðs á íbúðabréfum sem fram fór þann 8. júlí s.l. að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins verði óbreyttir 4,15%.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 8. júlí s.l. Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar var 3,49% en 3,53% með þóknun. Vaxtaálag vegna rekstrar, varasjóðs og uppgreiðsluáhættu er sem fyrr 0,60%. Útlánavextir eru því óbreyttir 4,15%.