Eignarhaldsfélagið Oddaflug, sem er stjórnað af Hannesi Smárasyni, og Baugur eiga nú tæpan 50% hlut í FL Group, segir greiningardeild Íslandsbanka.

Breytingarnar koma í kjölfar 44 milljarða króna hlutafjárútboðs FL Group, sem lauk í gær og mun Oddaflug eiga 25,1% hlut í félaginu og Baugur 24,6%.

Af þeim 28 milljörðum sem stærstu hluthafar félagsins skráðu sig fyrir er hlutur Baugs stærstu, eða 15 milljarðar króna, en Oddaflug keypti bréf fyrir 7,5 milljarða, segir í frétt greiningardeildar Íslandsbanka. Óstofnað einkahlutafélag, sem verður í jafnri eigu Magnúsar Ármanns, Þorsteins Jónssonar og Kevin Stanford, að nafni Materia Invest skráði sig fyrir 5,5 milljörðum.