Oddatá ehf. og Fiskvinnslan Kambur ehf. hafa gert með sér kaupsamning þar sem Oddatá ehf. kaupir allar fasteignir og tæki Kambs á Flateyri. Tilkynning um það hefur verið send út til fjölmiðla. Þar kemur fram að Oddatá ehf. er félag að stærstum hluta í eigu og undir stjórn Kristjáns Erlingssonar.

Í fréttinni kemur fram að félagið vill með kaupunum leiða uppbyggingu á margþátta starfsemi með aðkomu sem flestra aðila. Markmið beggja samningsaðila er fyrst og fremst að viðhalda og efla blómlega byggð á Flateyri og hafa eigendur Kambs með aðkomu sinni að samningnum lagt sitt af mörkum til að gera það framkvæmanlegt.

Oddatá ehf. stefnir að því að stofna rekstrarfélag um vinnslu á frosnum og ferskum afurðum á Flateyri sem nýta mun fullkominn tækjakost og einvalalið starfsmanna sem hefur mikla reynslu af fiskvinnslu. Fyrirtækið vill gera allt sem það getur til að sem flestir starfsmenn Kambs haldi vinnu sinni. "Þekking og reynsla starfsmanna er lykillinn að hagkvæmri vinnslu og því vilja eigendur Oddatáar ehf. stuðla að því að heilindum að starfsmönnum Kambs verði gert kleift að taka þátt í uppbyggingu fyrirtækisins og taki jafnframt að sér stjórnun vinnslunnar að stórum hluta," segir í tilkynningunni.

Hráefnisöflun hins nýja félags mun byggjast á kaupum á fiskmörkuðum og viðskiptum við báta heimamanna. Miklar vonir eru bundnar við þá aðstöðu sem til er í landi, m.a. beitningarplássi og frystiklefum, þannig hægt verði að auka umfang fiskveiða frá Flateyri. Á sama tíma stefnir Oddatá ehf. að því að bjóða upp á aðstöðu og leita eftir samstarfi við fleiri aðila, tengdum eða ótengdum fiskiðnaðinum, um nýting annarra eigna.

Í tilkynningunni kemur fram að eigendur Oddatáar ehf. gera sér grein fyrir því að verið er að ráðast í umfangsmikið verkefni og óska þess vegna eftir góðu samstarfi við íbúa svæðisins og öllum þeim sem lagt geta sín lóð á vogarskálarnar á þessum umrótartímum.