Prentsmiðjan Oddi hefur brugðist við því sem þeir kalla neikvæð þróun samkeppnisumhverfis með auknum innflutningi umbúða sem þýðir að 86 störf leggjast af hjá Odda. Á sama tíma hyggst félagið efla innlenda prent- og öskjuframleiðslu

Umfangsmiklar breytingar munu eiga sér stað hjá Odda á næstu mánuðum þar sem fyrirtækið mun hætta innlendri framleiðslu á plast- og bylgjuumbúðum.

Þess í stað mun Oddi efla vöruúrval og þjónustu við viðskiptavini með áherslu á sölu innfluttra umbúða í samstarfi við öfluga erlenda birgja og bjóða upp á þekkingu, ráðgjöf og sölu umbúðalausna sem þróaðar eru samkvæmt þörfum viðskiptavina segir í fréttatilkynningu.

Jafnframt verður innlend prent- og öskjuframleiðsla Odda efld. Breytingunum er ætlað að tryggja framtíð Odda á íslenskum markaði með því að styrkja og efla félagið til langs tíma á grunni áratuga þekkingu á umbúðum og prentverki.

Plastprent og Kassagerðin hætta störfum

Breytingarnar hafa í för með sér að á næstu mánuðum verður framleiðslu hætt í verksmiðjunum Plastprenti og Kassagerðinni og þess í stað lögð áhersla á að efla miðlæga starfsemi Odda í innflutningi umbúðalausna, prent- og öskjuframleiðslu og sölu og þjónustu við viðskiptavini.

Við lögun starfseminnar að breyttum aðstæðum leggjast af 83 störf við framleiðslu og afleidd störf og fækkað verður um þrjá í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Stjórn og stjórnendum Odda þykir leitt að sjá á eftir því góða og reynslumikla starfsfólki sem nú skilur við fyrirtækið vegna þess og lögð verður áhersla á að veita því stuðning og aðstoð við næstu skref með virðingu fyrir hverjum einstaklingi í huga.

Styrking krónunnar og miklum launahækkunum kennt um

Undanfarin ár hefur orðið hröð neikvæð þróun á starfsumhverfi íslenskra framleiðslufyrirtækja, sem m.a. má rekja til þess að sterkt gengi íslensku krónunnar og launahækkanir langt umfram það sem þekkist í samkeppnislöndum hafa veikt mjög samkeppnisstöðu innlendrar framleiðslu.

Oddi hefur ekki farið varhluta af þeirri þróun og mikið umbótastarf hefur þegar verið unnið innan fyrirtækisins til að bregðast við breyttum aðstæðum.

„Starfsumhverfi fyrirtækja eins og Odda sem eru í beinni samkeppni við erlenda framleiðslu hefur verið að þyngjast jafnt og þétt undanfarin ár. Það er auðvitað ekki eini áhrifavaldurinn en hefur mikið að segja um niðurstöðuna og við teljum okkur þurfa að bregðast skýrt við breyttum aðstæðum í rekstrinum núna til að tryggja viðskiptavinum okkar áfram þau gæði og þjónustu sem Oddi stendur fyrir“ segir Kristján Geir Gunnarsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Odda.

„Þetta er grundvallarbreyting á starfsemi fyrirtækisins og það er vissulega áhugaverð vinna fram undan við að byggja upp nýjan Odda. Á þessari stundu leggjum við hins vegar höfuðáherslu á að aðstoða okkar góða starfsfólk sem skilur við Odda í kjölfar breytinganna eins og við getum. Það er algert forgangsmál í okkar huga.“