Félagið Kvos ehf., sem er 100% í eigu Prentsmiðjunnar Odda hf., hefur selt 15.177.317 hluti sína í Nýherja en það jafngildir 5,75% af hlutafé Nýherja. Þar með hefur Kvos selt allan hlut sinn í Nýherja.

Hilmar B. Baldursson er stjórnarmaður í Nýherja hf. og í varastjórn Prentsmiðmunnar Odda hf., sem á Kvos ehf.