Oddný Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, biðlar til þeirra Gunnars Smára Egilssonar, Ragnar Önundarsonar og Mikaels Torfasonar á facebook vegg sínum um að stofna ekki nýjan flokk til vinstri.

Eins og fram hefur komið í fréttum hafa þeir félagar hafið undirbúning að stofnun Sósíalistaflokks, meðal annars með stofnun eða endurskírn fjölmenns facebook hópar sem upphaflega var stofnaður í kringum þá hugmynd að Ísland myndi ganga Noregskonungi á hönd á ný.

„Ég bið ykkur um að bíða aðeins og gera þá tilraun að styrkja Samfylkinguna jafnaðarmannaflokk Íslands með kröftum ykkar,“ skrifar Oddný inn í hópinn Sósíalistaflokkur Íslands.

Skrattanum skemmt með enn einum vinstriflokknum

„Samfylkingin er með góða innviði út um allt land þar sem borin er uppi nákvæmlega sama stefna og þið boðið. Ekki skemmta skrattanum enn einu sinni með stofnun flokks á vinstrivængnum.

Sameinuð erum við sterk en sundruð höfum við lítil áhrif og höfum ekki afl til að hreyfa við stóru málunum sem hugsjónir okkar brenna fyrir. Verum skynsöm, verum saman og göngum skipulögð til verka!“