Logi Einarsson, varaformaður Samfylkingarinnar tekur við tímabundið sem nýr formaður Samfylkingarinnar eftir að Oddný G. Harðardóttir tilkynnti um að hún væri hætt sem formaður. Oddný tilkynnti um þetta á Bessastöðum að afloknum fundi sínum með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands.

Jafnframt sagði hún ljóst í ljósi stöðu Samfylkingarinnar að flokkurinn færi ekki í ríkisstjórn, en hann myndi hins vegar styðja öll góð mál og gæti hugsað sér að verja umbótastjórn.

Oddný sendi frá sér svohljóðandi yfirlýsingu í framhaldinu:

„Ég tók við sem formaður á miklum erfiðleikatímum í Samfylkingunni, tæpum fimm mánuðum fyrir kosningar. Á þeim stutta tíma tókst ekki að snúa við erfiðri stöðu flokksins og niðurstaða kosninganna er mér mikil vonbrigði.

Samfylkingin náði ekki árangri í þessum kosningum, en það kemur dagur eftir þennan dag og við höldum áfram. Það er afar mikilvægt að það skapist friður innan flokksins svo hægt sé að byggja starfið upp að nýju.

Ég ætla að leggja mig alla fram við þá vinnu sem framundan er við að efla Samfylkinguna, því sjaldan hefur verið mikilvægara en nú að rödd jafnaðarmanna heyrist kröftuglega í íslenskum stjórnmálum og á Alþingi.

Afgerandi niðurstöður kosninganna kalla hins vegar á afgerandi viðbrögð. Ég hef því ákveðið að stíga til hliðar sem formaður Samfylkingarinnar.

Logi Einarsson, varaformaður og nýkjörinnþingmaður Norðausturkjördæmis, tekur nú við stjórn flokksins.“