Mikill munur er á kostnaði vegna húshitunar fyrir íbúa í höfuðborgum Norðurlandanna. Íbúi í Kaupmannahöfn þarf að borga 314 þúsund krónur á ári, í Stokkhólmi rúmlega 300 þús krónur, í Osló 264 þúsund krónur og í Helsinki 246 þúsund krónur á ári. Í Reykjavík er árlegur kostnaður hins vegar aðeins 90 þúsund krónur. Að meðaltali er kostnaðurinn 243.521 kr. á ári fyrir íbúa í höfuðborg á Norðurlöndum.

Þetta kemur fram í árlegri samantekt Samorku um húshitunarkostnað þar sem stuðst er við nýjar tölur frá stærstu veitufyrirtækjum í hverri höfuðborg á Norðurlöndum.

Langflest heimili á Íslandi eru hituð upp með jarðhita, eða 90%. Í Reykjavík er þetta hlutfall 100%. Á hinum Norðurlöndum er að mestu notast við raforku eða jarðefnaeldsneyti við upphitun húsa.

Á hverju ári sparar húshitun með jarðhita mikla losun koltvísýrings út í andrúmsloftið, eða um 19 milljónir tonna árlega. Til samanburðar höfum við skuldbundið okkur til að minnka losun koltvísýrings um eina milljón tonna fyrir árið 2030 samkvæmt Parísarsamningnum.