Samkeppnismat OECD á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði verður birt á opnum fundi í Norðurljósasal Hörpu klukkan 13:00 í dag sem streymt verður frá beint, en í því eru gerðar tillögur um 438 breytingar á lögum og reglum um greinarnar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra býður til fundarins þar sem fjallað verður um niðurstöður samkeppnismatsins sem hún óskaði eftir árið 2018 og niðurstöður liggja nú fyrir.

Eins og áður segir er fundurinn er í dag, þriðjudaginn 10. nóvember, kl. 13:00 í Norðurljósasal Hörpu, og er fjölmiðlafólk velkomið að vera á fundinum. Fjöldatakmörkun miðast við 10 manna hólf fyrir fjölmiðla. Fólk er beðið um að vera með grímur.

Greining OECD hefur leitt í  ljós að til staðar eru fjölmörg tækifæri til þess að bæta regluverkið, skýra það, draga úr óþarfa reglubyrði og stuðla þannig að aukinni samkeppni til hagsbóta fyrir atvinnulíf og neytendur.

OECD gerir 438 tillögur til breytinga á gildandi lögum og reglum sem snúa að ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Tilgangur samkeppnismats er að greina lög og reglur sem atvinnulífinu er gert að starfa eftir með tilliti til þess hvort í þeim felist samkeppnishindranir eða óþarfa reglubyrði sem ryðja megi úr vegi.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Angel Gurría, framkvæmdastjóri OECD
  • Ásmundur Einar Daðason, félagsmála- og barnamálaráðherra
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
  • Ania Thiemann, verkefnastjóri samkeppnismatsins hjá OECD
  • Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins

Fundarstjóri er Bergur Ebbi