Eigendur ritfangaverslunar Office 1 hefur keypt ritfanga- og skólaverslunina A4. A4 var í eigu Bjargar, samlagshlutafélags í eigu Sparisjóðabankans.

Kaupverð er trúnaðarmál, að því er fram kemur í tilkynningu.

Tæknival stofnaði Office 1 árið 2001. Félagið Egilsson keypti reksturinn fjórum árum síðar. Verslanir Office 1 eru sex, fjórar á höfuðborgarsvæðinu og tvær á Egilsstöðum og Selfossi. A4 rekur tvær verslanir, eina í Reykjavík og aðra á Akureyri.