Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri SA segir Hagstofuna hafa ofmetið launavísitöluna hjá fólki í þjónustu-, sölu- og afgreiðslustörfum um 38% á árunum 2005 til 2016 að því er Morgunblaðið segir frá.

„Launavísitala Hagstofunnar hefur æ ofan í æ ofmetið þær launabreytingar sem orðið hafa á íslenskum vinnumarkaði síðustu áratugina. Hún hefur að jafnaði hækkað rúmlega 0,7% umfram hækkun meðallauna á árabilinu 2005-2016,“ segir Hannes sem segir aðferðina við mat á launabreytingunum sem Hagstofan noti hvergi annars staðar þekkjast og bent hafi verið á að hún skili hærri niðurstöðu en breyting meðallauna.

„Þetta er verulega alvarlegt mál því vinnumarkaðurinn allur miðar forsendur þeirra kröfugerða sem uppi eru þegar kjarasamningar losna við þessa vísitölu. Þegar hún gefur ranga mynd af launaþróuninni er fólk í sífellu að miða við hluti sem varpa ekki réttu ljósi á raunverulega launaþróun í landinu.“