Afþreyingarisanum Disney virðist ætla að farnast talsvert betur með kvikmyndina um ofurhetjuhópinn í The Avengers en floppið um ævintýri John Carters sem flestir vilja gleyma, ekki síst stjórnendur Disney. Það sem vekur athygli er að myndin The Avengers hefur enn ekki verið sýnd í Bandaríkjunum. Hún var frumsýnd um Evrópu og víðar í síðustu viku, þar á meðal hér á landi, og hefur 185,1 milljón dala skilað sér í aðgangseyri. Það er heilum sjö milljónum meira en reiknað hafði verið með.
Samkvæmt umfjöllun bandarísku fréttastofunnar CBS af myndinni halaði hún inn yfir helgina jafnvirði 25,5 milljóna dala í Bretlandi, tæpa 20 í Ástralíu og tæplega 17 í Mexíkó.
Til samanburðar er áætlaður framleiðslukostnaður myndarinnar um 220 milljónir dala.
Myndin hefur fengið nokkuð góða dóma, þar á meðal 8,9 stig á IMDB.