Stjórn Og Vodafone (Og fjarskipta hf.) samþykkti á fundi sínum í dag hækkun á hlutafé félagsins um kr. 45,7 milljónir króna. Eftir hækkunina verður hlutafé félagsins kr. 3.531.813.219.

Í tilkynningu til Kauphallar kemur fram að hinu nýja hlutafé verði ráðstafað til greiðslu fyrir hlutabréf í Margmiðlun hf. Hinir nýju hlutir veita hluthöfum sömu réttindi í félaginu og öðrum hluthöfum og tekur gildi frá og með skráningardegi hækkunarinnar hjá hluthafaskrá.

Hækkun hlutafjárins verður tilkynnt í Kauphöll um leið og skráning þess hefur átt sér stað.