Ný Úrvalsvísitala liggur nú fyrir og mun þessi vísitala gilda tímabilið 1. júlí til 31. desember á þessu ári. Þrjú ný félög koma inn í vísitöluna að þessu sinni, HB Grandi, SÍF og Jarðboranir. Bréf félaganna koma í stað Atorku Group, Og fjarskipta og Samherja. Myndast hefur yfirtökuskylda á bréfum Samherja og dettur félagið því út. Bréf Og fjarskipta og Atorku eru ekki inni þar sem félögin uppfylltu ekki skilyrði um að félag birti allar fréttir á ensku á því tímabili sem það er í vísitölunni.

Byggt á Vegvísi Landsbankans.