Hæstiréttur hefur ógilt samruna Ufsabergs-útgerðar við Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum. Ógildingin var að kröfu Stillu útgerðar ehf., KG fiskverkunar ehf. og Guðmundar Kristjánssonar um að ákvörðun hluthafafundar í Vinnslustöðinni hf. 21. september árið 2011 yrði ógilt.

Dómurinn hefur ekki verið birtur. Í tilkynningu frá lögmanni Vinnslustöðvarinnar er bent á að dómurinn hafi klofnað í afstöðu sinni. Þrír dómarar af fimm hafi talið að taka beri kröfunni um ógildinu til greina en tveir skilað séráliti. Í héraðsdómi var ekki fallist á dómkröfur Stillu-útgerðar ehf. og Guðmundar Kristjánssonar.

Samruni Ufsabergs-útgerðar. og Vinnslustöðvarinnar hefur þegar farið fram.

Lögmaður Vinnslustöðvarinnar segir að farið verði yfir dóminn á næstu dögum með tilliti til þeirra annmarka sem meirihluti Hæstaréttar telur að verið hafi á samþykkt hluthafafundarins haustið 2011. Ákvörðun verður tekin síðar um framhaldið.

Langur aðdragandi

Stilla útgerð og Guðmundur Kristjánsson hafa stefnt fyrrverandi stjórnarformanni Vinnslustöðvarinnar ásamt þremur úr eigendahópi félagsins. Félagið og Guðmundur eru hluthafar í Vinnslumiðstöðinni. Stilla og Guðmundur kröfðust ríflega 220 milljóna króna í skaðabætur vegna meints tjóns sem þeir telja að Vinnslustöðin hafi orðið fyrir við kaup á 35% eignarhlut í Ufsabergi útgerð árið 2008. Hluthafarnir töldu m.a. að meirihluti eigenda Vinnslustöðvarinnar hafi samþykkt að greiða óeðlilega hátt verð fyrir Ufsaberg-útgerð.