Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri-grænna, segist ánægður með ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í fréttum í gær þar sem forsætisráðherra sagði erlenda fjárfestingu um margt líka erlendri skuldsetningu.
Á vefsíðu sinni skrifar Ögmundur: „Ég hef gagnrýnt Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra fyrir að liggja nánast á hnjánum frammi fyrir erlendum fjárfestingaspekúlöntum að biðja þá að koma hingað til lands með úttroðna vasa fjár til að ávaxta sitt pund. Þetta hefur verið nokkuð samtóna gamalkunnum söng „aðila vinnumarkaðar",alla vega ASÍ/SA hlutans, undanfarin ár. Þessir „aðilar"hafa aldrei svarað ákalli hvorki mínu né annarra um að fá að vita hvar þeir vildu að erlendir fjárspekúlantar fjárfestu. Helst hefur verið á þeim að skilja að það væri fyrst og fremst í stóriðju, í orkunni og auðlindunum. Erlend fjárfesting í þessum greinum er jafn varasöm að mínu mati og hitt er æskilegt að fá samstarf við erlend fyrirtæki færandi þekkingu og hugsanlega einnig fjármagn til uppbbyggingar í atvinnulífi.“
Víkur Ögmundur þá að því sem Sigmundur Davíð sagði í gær, en í fréttum RÚV sagði Sigmundur að erlend fjárfesting hafi þó ákveðinn galla umfram innlenda fjárfestingu sem sé sá að hún sé í eðli sínu lík erlendri lántöku.
Segir Ögmundur að þarna tali Sigmundur mjög að sínu skapi og birtir stóra hluta úr viðtalinu við Sigmund.