Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra og formaður BSRB hefur ákveðið að láta af störfum sem formaður BSRB í haust.

„Sama hvernig þessar kosningar fara, og óháð því hverjar verða lyktir um stjórnarsamstarf eða hugsanlegan ráðherradóm minn, þá mun ég á næsta þingi bandalagsins í haust formlega láta af formennsku í BSRB,“ segir Ögmundur í samtali við BSRB tíðindi.

„ Verði framhald á stjórnarsamstarfinu yrði ég væntanlega formaður in absentia eins og ég hef verið frá því ný ríkisstjórn tók við í byrjun febrúar. Frá þeim tíma hef ég ekkert komið að stjórn bandalagsins.“

Ögmundur hefur verið óslitið stjórn BSRB frá 1981 að undanteknum árunum sem hann var fréttaritari og þáttagerðarmaður Sjónvarpsins á Norðurlöndum en þá hefur hann verið formaður frá árinu 1988 eða rúma tvo áratugi.

„Bandalagið er mér mjög hjartkært og verður alltaf hluti af mér enda drjúgur hluti af mínu lífshlaupi,“ segir Ögmundur í samtali við BSRB tíðindi.

„Það hefur verið undarleg tilfinning síðustu vikurnar að sækja ekki stjórnarfundi BSRB en frá október 1988 og fram í febrúarbyrjun á þessu ári hef ég ekki misst af einum einasta stjórnarfundi.“

Þing BSRB hefur verið ákveðið 21. til 23. október.