Ögmundur Jónasson, alþingismaður, lagði áherslu á stuðnings Íslands við sjálfstæðisbaráttu Palestínumanna í ræðu sem hann hélt á þingi Evrópuráðsins sem nú stendur yfir í Strasbourg.

Ögmundur benti á að Íslendingar hefðu samhljóða samþykkt á Alþingi viðurkenningu á fullvalda og sjálfstæðri Palestínu og jafnframt verið eina vestræna ríkið sem stóð að tillögu um að Palestína fengi aukin réttindi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Hann minntist þess þegar fyrrverandi utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, neitaði að taka á móti ráðherra frá Ísrael sem vildi ná fundi hans til að „leiðrétta“ íslensku ríkisstjórnina eftir að hernaðarofbeldið á Gaza var fordæmt af Íslands hálfu.

Umræðan var í tilefni þess að Evrópuráðið hefur tekið upp samstarf við palestínsk stjórnvöld um eflingu lýðræðis og réttarríkis í Palestínu. Evrópuráðið samþykkti ályktun þar sem fagnað er þeim skrefum sem stigin hafa verið í þessa veru