Til að heiðra minningu fórnarlamba hörmunganna í Suðaustur Asíu 26. desember mun Kauphöll Íslands hafa þriggja mínútna þögn í viðskiptakerfinu í dag kl. 12:00. Viðskiptakerfinu verður ekki lokað en kauphallaraðilar eru beðnir um að virða þessa þögn.

Ósk um þriggja mínútna þögn kemur frá Evrópusambandinu og munu allar NOREX-kauphallirnar auk annarra evrópskra kauphalla verða við henni.