Útgerðarfélagið Ögurvík hefur sagt upp öllum sjómönnum á skipum fyrirtækisins, samtals um 70 manns. Fyrirhugað er að endurráða 50 manns en um 20 missa vinnuna. Stjórnendur félagsins ætla að selja annan togarann og veiða kvótann á einu skipi. Er greint frá þessu í Morgunblaðinu.

„Þetta er ekki skemmtilegt verkefni,“ sagði Hjörtur Gíslason, framkvæmdastjóri Ögurvíkur, í samtali við Morgunblaðið um uppsagnirnar. Hann sagði að margir þeirra sem hefðu fengið uppsagnarbréfið væru búnir að vinna lengi hjá félaginu, sumir áratugum saman.

„Þessi rekstur hjá okkur hefur verið þungur. Við höfum verið að glíma við stökkbreytt lán og síðan horfum við fram á að markaðir eru heldur að gefa eftir. Það má búast við að verðið haldi áfram að lækka áður en markaðir ná jafnvægi. Kornið sem fyllti mælinn var svo auðlindaskatturinn sem við fengum, en við þurfum að greiða 200 milljónir í fjórum greiðslum. Sá skattur fer síðan hækkandi í þrjú ár.