Úrskurðarnefnd hollustuhátta- og mengunarmála hefur kveðið upp þann úrskurð að Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, UHR, hafi verið óheimilt að setja dreifingarbann á drykkinn Kristal Plús sem Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. setti á markað um áramót. Úrskurðarnefnd tekur undir sjónarmið Ölgerðarinnar þess efnis að enginn lagagrundvöllur hafi verið fyrir dreifingarbanninu. Ölgerðin íhugar að krefja Reykjavíkurborg um skaðabætur vegna þess skaða sem fyrirtækið hefur orðið fyrir vegna dreifingarbannsins.

?Þetta er mikilvægur sigur fyrir okkur og viðurkenning á okkar málstað. Kristall Plús er kominn til að vera enda hafa viðtökur verið ótrúlegar. Ölgerðin hefur markað sér þá stefnu að bjóða uppá hollari drykki og því er mjög mikilvægt fyrir fyrirtækið að hafa skýrar reglur til að vinna eftir,? segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar í tilkynningu frá félaginu.

Ölgerðin setti drykkinn Kristal Plús á markað í tveimur bragðtegundum um áramót. UHR stöðvaði dreifingu drykkjarins með bréfi dagsettu 4. janúar. Átti stöðvun dreifingar að gilda þar til niðurstaða umsóknar til Umhverfisstofnunar um aukaefni í matvælum lægi fyrir. Ölgerðin fór fram á að dreifingarbanninu yrði aflétt en þeirri kröfu var synjað með bréfi 6. janúar. Ölgerðin kærði báðar þessar ákvarðanir UHR til Úrskurðarnefndar hollustuhátta- og mengunarmála sem tók málið fyrir 17. mars sl.

Ölgerðin hefur, allt frá því dreifing á Kristal Plús var stöðvuð, haldið því fram að hvergi hafi komið fram á hvaða lagagrundvelli ákvörðun um stöðvun dreifingar á Kristal Plús hafi verið tekin. Einungis hafi verið vísað til reglugerðarákvæða um aukaefni í matvælum en vítamín og steinefni, sem finnast í Kristal Plús, eru ekki aukaefni í skilningi reglugerðarinnar.

Í greinargerð lögmanna Ölgerðarinnar kemur m.a. eftirfarandi fram:

? UHR greip til íþyngjandi ráðstafana sem voru utan valdssviðs stofnunarinnar
? Ákvörðun UHR uppfyllti ekki lögmætisreglu stjórnsýslunnar
? Dreifingarstöðvun var bara beitt gegn innlendri framleiðslu með bætiefnum en ekki innfluttri sem er brot á ákvæðum stjórnarskrár um að allir séu jafnir fyrir lögum
? UHR hefur ekki lögbundið hlutverk þegar kemur að leyfisveitingu fyrir íblöndun bætiefna né er stofnuninni falið að grípa til aðgerða sé ekki sótt um slíkt leyfi.