Þóknun Íslandsbanka fyrir að sjá um útgáfu nýs hlutafjár í Icelandair Group nemur tæplega 125 milljónum króna.

Alls nam kostnaður Icelandair Group vegna útboðsins um 152 milljónum króna.

Þetta kemur fram í kynningarbæklingi sem Icelandair Group gaf út í lok október. Alls voru gefnir út 2.941.000.000 nýir hlutir í félaginu en eldra hlutafé nam 1.000.000.000 að nafnvirði.

Stærsti kaupandi bréfanna var Framtakssjóður Íslands.