Ólafía B. Rafnsdóttir sem hafði betur í formannsslag VR í dag. Ólafía hlaut 76% atkvæða en Stefán Einar Stefánsson, fráfarandi formaður, 24%. Þau voru tvö í framboði. Allsherjaratkvæðagreiðslu til formanns VR og stjórnar lauk á hádegi í dag. Ólafía mun sitja næstu tvö árin í formannsstólnum eða fram til ársins 2015.

Á kjörskrá voru 29.439 félagsmenn VR en aðeins 6.224 nýttu sér réttinn til að kjósa sér formann.