KPMG hefur undirritað samning við atvinnukylfinginn Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KPMG.

Á LPGA mótaröðinni hittir hin 24 ára Ólafía Þórunn fyrir aðra tvo sendiherra KPMG, tvöfaldan sigurvegara á risamóti LPGA, Stacy Lewis sem er nú í 14 sæti heimslistans og hina rísandi stjörnu, Mariah Stackhouse.  Eins og hinir sendiherrar KPMG mun Ólafía Þórunn vera með merki KPMG framan á húfu sinni þegar hún keppir á LPGA 2017.

„Ólafía Þórunn vann sér inn keppnisréttinn á LPGA mótaröðinni 2017 með því að enda í öðru sæti á lokastigi úrtökumóta í byrjun desember sl.  Með þessu varð hún fyrsti Íslendingurinn til að tryggja sér fullan rétt á LPGA mótaröðinni. Hápunktur þeirrar keppnisviku var 2. hringur hennar sem hún fór á 66 höggum, sem hún fylgdi svo eftir með glæsilegri spilamennsku og endaði aðeins einu höggi frá sigri.  Gríðarlegur áhugi var hér heima meðan mótið fór fram auk þess sem fjöldi áhorfenda fylgdi henni eftir í toppbaráttunni, þar á meðal fjöldi Íslendinga sem höfðu lagt leið sína til Bandaríkjanna til að styðja við bakið á henni,“ segir í fréttatilkynningunni.

„Ólafía Þórunn er sannarlega brautryðjandi sem íslenskir kylfingar og íþróttamenn almennt líta upp til,” sagði Jón S. Helgason, framkvæmdastjóri KPMG á Íslandi.  „Við hjá KPMG erum ákaflega stolt af því að geta stutt við keppnisferil Ólafíu Þórunnar og bætast þannig í hóp með Forskoti og þeim góðu fyrirtækjum sem stutt hafa dyggilega við bakið á henni undanfarin ár.  Við hlökkum mikið til að sjá henni vegna vel á komandi keppnistímabili, bæði innan golfvallar og utan sem golf sendiherra KPMG.”

Ólafía Þórunn sagði, „Það er heiður að njóta stuðnings svona virts fyrirtækis eins og KPMG.  KPMG hefur stutt dyggilega við kvennagolf og ég get ekki beðið eftir að verða þeirra fulltrúi og fulltrúi Íslands þegar ég byrja feril minn á þessari sterkustu mótaröð í heimi.”

Golf sendiherrar KPMG eru Phil Mickelson, Stacy Lewis, Mariah Stackhouse, Paul Dunne, Klara Spilkova og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.  KPMG er einnig aðal stuðningsaðili KPMG Women’s PGA Championship sem er eitt af fjóru risamótunum á LPGA.