Stofnað hefur verið einkahlutafélagið Þingmaðurinn ehf. utan um framleiðslu kvikmyndar sem ber sama vinnuheiti, þ.e. Þingmaðurinn. Endanlegt nafn hefur ekki verið ákveðið. „Við erum að fara í tökur mjög fljótlega og vonumst til að geta frumsýnt myndina á haustmánuðum,“ segir Ólafur Darri Ólafsson, leikari og annar stofnandi félagsins.

Hann sagðist að öðru leyti ekki geta sagt mikið um myndina eða félagið að svo stöddu, en sagði fólki frjálst að draga ályktanir um efnistök myndarinnar af nafni félagsins. Um er að ræða leikna kvikmynd í fullri lengd. Hinn stofnandi félagsins er kvikmyndaframleiðandinn Marteinn Steinar Þórsson.