Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, er hættur störfum þar. Hann skrifaði harðorðan leiðara í blaðið í dag þar sem hann gagnrýndi eigendur fjölmiðla og afskiptasemi þeirra sem hann taldi geta rýrt trúverðugleika fjölmiðla.

Eins og fram kom í umfjöllun VB.is um breytingar á fréttastofu 365 miðla í gær var Ólafi boðið að starfa þar áfram. Hann hafi viljað segja upp. Ekki hafi verið tekið við uppsögn hans.

Ólafur skrifaði samstarfsfólki sínu bréf í kveðjuskyni.

Bréf Ólafs í heild sinni

„Komið þið sæl.

Eftirfarandi sendi ég fjölmiðlum fyrir fáeinum sekúndum:

„Ég undirritaður hef falið lögmanni mínum að tilkynna Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra 365 miðla, að ég líti svo á að ráðningarsamningi mínum við 365 miðla hafi verið rift og ég sé óbundinn af honum. Boð um breytt starf hjá fyrirtækinu, sem átti að fylgja ritstjóratitill, fól engu að síður í sér verulega breytingu á verkefnum mínum, starfsskyldum og ábyrgð. Ráðning tveggja nýrra ritstjóra felur það sama í sér.

Þá hafa fleiri atburðir undanfarinna daga  á fréttastofu 365, sem ég get ekki tjáð mig frekar um vegna trúnaðar, orðið til þess að ég get ekki litið öðruvísi á en að ætlunin sé að þrengja að sjálfstæði mínu sem ritstjóra, sem kveðið er á um í siðareglum félagsins.

Af þessu leiðir að ég mæti ekki til starfa á fréttastofunni á morgun. Ég kveð gott samstarfsfólk með söknuði og þakka því ánægjulega samfylgd.“

Það er ástæða til að ítreka enn betur hér þakkir mínar til ykkar, frábæra samstarfsfólk, sem ég hef átt með fjögur og hálft ánægjulegt ár. Sjáumst síðar.

Kveðja, ÓÞS“