Ólafur Stephensen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og hefur störf í dag, 1. október. Almar Guðmundsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri FA frá 2009, hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins.

Ólafur lét fyrir rúmum mánuði af starfi ritstjóra Fréttablaðsins og annarra fréttamiðla 365. Áður var hann meðal annars ritstjóri Morgunblaðsins, ritstjóri 24 stunda og aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. Ólafur starfaði einnig um skeið sem forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Símanum og sem forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs hjá Samtökum atvinnulífsins.

Ólafur lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1992 og MSc-prófi í alþjóðasamskiptum frá London School of Economics and Political Science 1994.

Í tilkynningu segist Ólafur hlakka til að takast á við spennandi verkefni hjá FA. Baráttumál félagsins á borð við frjálst viðskiptaumhverfi, sanngjarna samkeppni og opið hagkerfi falli prýðilega að þeim skoðunum sem hann hafi talað fyrir á ýmsum vettvangi.