Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú koma uppúr hádegi í dag til Zagreb í Króatíu og verða í kvöld viðstödd landsleik Íslands og Króatíu í knattspyrnu sem fram fer í borginni.

Forseti er á heimleið frá Abu Dhabi þar sem hann stjórnaði fundum dómnefndar Zayed orkuverðlaunanna, segir í tilkynningu frá forsetaembættinu.