Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tilkynnti á blaðamannafundi á Bessastöðum rétt í þessu að hann hyggðist bjóða sig fram til embættis forseta á ný. Hann hefur þegar gegnt embættinu í heil 20 ár.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá í morgun barst fréttatilkynning frá skrifstofu forseta þar sem boðað var til blaðamannafundar klukkan 16:15 í dag á Bessastöðum. Ekki var greint frá tilefni blaðamannafundarins í tilkynningunni.

Fréttin verður uppfærð.