Forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni hafa borist heillaóskir frá ýmsum þjóðhöfðingjum í tilefni af nýju kjörtímabili forseta og embættistöku 1. ágúst.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem skrifstofa Forseta Íslands sendi frá sér í morgun af þessu tilefni.

Þar kemur fram að heillaóskirnar eru m.a. frá þjóðhöfðingjum Norðurlanda, George W. Bush forseta Bandaríkjanna, Medvedev forseta Rússlands, Hu Jintao forseta Kína, Akihito keisara Japans og Horst Köhler forseta Þýskalands.

Í kveðju sinni þakkar George W. Bush forseta Íslands sérstaklega fyrir framlag hans við að kynna í Bandaríkjunum og víðar í veröldinni reynslu og þekkingu Íslendinga í nýtingu jarðhita og fyrir að hvetja af framsýni til hagnýtingar þeirrar tækni í þágu annarra þjóða.

Í kveðjum Hu Jintao forseta Kína og Medvedev forseta Rússlands koma fram sérstakar óskir um að efla á komandi árum samvinnu Íslendinga og Kínverja og Íslendinga og Rússa.

Horst Köhler forseti Þýskalands fagnar sérstaklega í kveðju sinni væntanlegri opinberri heimsókn forseta Íslands til Þýskalands í október næstkomandi.