Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í morgun heillaóskir til nýkjörins forseta Rússlands Dimitri Medvedev.

Í kveðjunni áréttaði forseti Íslands að bæði rússneska þjóðin og veröldin öll vænti mikils af störfum hins nýja forseta enda framlag Rússlands við lausnir á vandamálum mannkyns afar brýnt, svo sem í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og fyrir friði og farsælli sambúð allra ríkja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu Forseta Íslands.

Þá nefndi forseti Íslands einnig að Íslendingar hefðu um árabil notið traustrar samvinnu við Rússa; öflug viðskipti og menning tengt þjóðirnar saman.

Á komandi árum væntu Íslendingar þess að hæfni þeirra við nýtingu hreinnar orku, einkum jarðhita, gæti nýst Rússum við breytingar á orkukerfum landsins og að samvinna þjóðanna í málefnum Norðurslóða yrði áfram árangursrík. Norðurslóðir væru í vaxandi mæli einn mikilvægasti hluti heims, einkum vegna auðlindanna sem þar er að finna og nýrra siglingaleiða sem kunna að opnast á komandi árum.