Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, snæddi í gærkvöldi kvöldverð á Akureyri með Ted Turner, stofnanda CNN. Þetta kemur fram í dagbók forsetans, en Turner er þekktur baráttumaður fyrir umhverfisvernd. Hefur hann fjallað mikið um hættuna sem stafar af loftslagsbreytingum.

Ólafur flutti í gær fyrirlestur um borð í skipinu National Geographic Explorer á Akureyri og átti Turner frumkvæðið að fyrirlestrinum. Hann er ásamt fjölskyldu sinni og fjölda umhverfissinna frá Bandaríkjunum á meðal farþega í þessari ferð skipsins í kringum Íslands.

Fram kemur í dagbók forsetans að skipið sé sérhæft til ferða til einstakra svæða í náttúru jarðarinnar og er það rekið í sameiningu af National Geographic tímaritinu og Lindblad Expeditions.

Í fyrirlestri sínum fjallaði forseti fyrst og fremst um þróun endurnýjanlegrar orku á Íslandi og skipulag fiskveiða, nýtingu auðlinda hafsins og þróun vísinda og tækni í tengslum við sjávarútveg. Fyrir þremur árum var forseti þátttakandi í ferð skipsins til Suðurskautslandsins en sú ferð var á sínum tíma skipulögð af Nóbelsverðlaunahafanum Al Gore, fyrrum varaforseta Bandaríkjanna.

Turner er 78 ára gamall og metinn á 2,2 milljarða Bandaríkjadala. Auk CNN stofnaði hann sjónvarpsstöðina TBS og var hann um tíma eigandi hafnaboltaliðsins Atlanta Braves.