Alls 44,5% aðspurðra í nýrri könnun MMR um stuðning við einstakaforsetaframbjóðendur sögðust myndu kjósa Ólaf Ragnar Grímsson. Þá ætla 36,9% að kjósa Þóru Arnórsdóttur. Niðurstaðan er því að tæpum átta prósentum munar á fylgi Ólafs Ragnars og Þóru, sem er marktækur munur að sögn MMR.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem birt var fyrir stundu. Könnunin var framkvæmd dagana 13. – 19. júní.

Um 10% þeirra sem tóku afstöðu sem lýstu yfir stuðningi við Ara Trausta Guðmundsson, 4,6% sögðust mundu kjósa Herdísi Þorgeirsdóttur, 2,0% Andreu J. Ólafsdóttur og 1,9% Hannes Bjarnason.

Sem fyrr reyndist töluverður munur á afstöðu fólks eftir því hvaða stjórnmálaflokka það sagðist styðja væri gengið til kosninga nú (og fer vaxandi frá fyrri könnunum). Þannig voru 67,2% framsóknarmanna, 63,7% sjálfstæðismanna og 45,7% stuðningsfólks Samtöðu sem sögðust kjósa Ólaf Ragnar. Á hinn bóginn voru 74,5% samfylkingarfólks, 59,5% Vinstri-grænna og 65,3% stuðningsfólks Bjartrar framtíðar sem sagðist vilja kjósa Þóru. Þá voru 62% þeirra sem sögðust styðja ríkisstjórnina sem jafnframt sögðust kjósa Þóru. Á móti voru 57,8% þeirra sem sögðust andvígir ríkisstjórninni sem sögðust vilja kjósa Ólaf Ragnar.

Sjá könnunina í heild sinni.