Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands er launahæstur í flokknum forseti, alþingismenn og ráðherrar í Tekjublaði Frjálsar verslunar sem kom út á þriðjudaginn. Mánaðartekjur Ólafs námu rúmlega 3,2 milljónum á mánuði. Næstur á eftir Ólafir er núverandi forseti lýðveldisins, Guðni Th Jóhannesson með um 2,8 milljónir á mánuði.
Tekjuhæstu einstaklingarnir í flokknum forseti, alþingismenn og ráðherrar:
- Ólafur Ragnar Grímsson, fv. forseti Íslands 3,253 milljónir
- Guðni Th Jóhannesson, forseti Íslands 2,811 milljónir
- Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra 2,165 milljónir
- Sigurður Páll Jónsson, alþm. 2,117 milljónir
- Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis 1,948 milljónir
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .