Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands hefur ákveðið að synja lögum um ríkisábyrgð vegna Tryggingasjóðs innistæðueigenda, hinum svokölluðu Icesave lögum.

Þetta kom fram á blaðamannafundi forseta fyrir skömmu. Frá því að lögin voru samþykkt þann 30. desember sl. hafa forsetanum borist áskoranir frá fjórðungi kjörbærra manna.

Forsetinn hafði einnig orð á því að skoðanakannanir bentu til þess að meirihluti þjóðarinnar væri andvígur samþykkt laganna.

„Skoðanakannanir benda til að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar sé sama sinnis. Þá sýna yfirlýsingar á Alþingi og áskoranir sem forseta hafa borist frá einstökum þingmönnum að vilji meirihluta alþingismanna er að slík þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram,“ sagði Ólafur Ragnar í yfirlýsingu sinni.

Þá sagði Ólafur Ragnar að rétt væri að þjóðin öll fengi tækifæri til að hafa áhrif á Icesave samninginn. Hann sagði að friður og sátt við erlend ríki væri ein af forsendum endurreisnar. Hins vegar þyrfti þjóðin öll að fá að hafa áhrif á svo veigamikil atriði sem hér um ræðir.

„Á þessum vegamótum er einnig mikilvægt að árétta að endurreisn íslensks efnahagslífs er um þessar mundir knýjandi nauðsyn. Hún er ótvírætt háð því að sátt sé við aðrar þjóðir og góð samvinna við alþjóðasamtök og alla sem áhrif hafa á efnahag landsins og fjárhagsgetu,“ sagði Ólafur Ragnar.

Ólafur Ragnar sagði að lausn Icesave deilunnar væri liður í slíkri farsælli þróun, skilyrði þess að þjóðin öðlist sem fyrst fyrri styrk og geti í samvinnu við aðra hafið öfluga endurreisn í þágu velferðar og hagsældar allra Íslendinga.

„Nú fær þjóðin valdið og ábyrgðina í sínar hendur," sagði Ólafur Ragnar jafnframt í yfirlýsingu sinni.

„Það er einlæg von mín að þessi niðurstaða leiði til varanlegra sátta og farsældar fyrir Íslendinga um leið og hún leggi grunn að góðri sambúð við allar þjóðir.“

Samkvæmt ákvæði stjórnarskrárinnar taka lögin gildi en þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um endanlegt gildi þeirra.

Yfirlýsing forseta Íslands er í heild sinni svohljóðandi:

Hrun bankanna og erfiðleikar í kjölfar alþjóðlegrar efnahagskreppu hafa haft í för með sér djúpstæðan vanda. Þótt íslenska ríkið hafi tekið á sig ýmsar skuldir stærri en þær sem tengjast svonefndu Icesave máli, hafa umræður um það engu að síður orðið kjarni í glímunni um uppgjör og framtíð.

Alþingi hefur nú að nýju samþykkt lög um þetta efni. Þau fela í sér breytingar á gildandi lögum nr. 96/2009 sem Alþingi samþykkti 28. ágúst og byggð voru á samningum við stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi. Forseti staðfesti þau lög 2. september 2009 með tilvísun í sérstaka yfirlýsingu.

Í framhaldi af samþykkt Alþingis á hinum nýju lögum 30. desember 2009 hafa forseta borist áskoranir frá um fjórðungi kosningabærra manna í landinu um að vísa þessum breytingalögum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er mun hærra hlutfall en tilgreint hefur verið sem viðmið í yfirlýsingum og tillögum stjórnmálaflokka.

Skoðanakannanir benda til að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar sé sama sinnis. Þá sýna yfirlýsingar á Alþingi og áskoranir sem forseta hafa borist frá einstökum þingmönnum að vilji meirihluta alþingismanna er að slík þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram.

Forseti hefur eftir samþykkt Alþingis átt ítarlegar viðræður við ráðherra í ríkisstjórn Íslands: forsætisráðherra, fjármálaráðherra, utanríkisráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hornsteinn stjórnskipunar íslenska lýðveldisins er að þjóðin er æðsti dómari um gildi laga. Stjórnarskráin sem samþykkt var við lýðveldisstofnun 1944 og yfir 90% atkvæðisbærra landsmanna studdu í þjóðaratkvæðagreiðslu felur í sér að það vald sem áður var hjá Alþingi og konungi er fært þjóðinni. Forseta lýðveldisins er svo ætlað að tryggja þjóðinni þann rétt.

Á þessum vegamótum er einnig mikilvægt að árétta að endurreisn íslensks efnahagslífs er um þessar mundir knýjandi nauðsyn. Hún er ótvírætt háð því að sátt sé við aðrar þjóðir og góð samvinna við alþjóðasamtök og alla sem áhrif hafa á efnahag landsins og fjárhagsgetu. Lausn Icesave deilunnar er liður í slíkri farsælli þróun, skilyrði þess að þjóðin öðlist sem fyrst fyrri styrk og geti í samvinnu við aðra hafið öfluga endurreisn í þágu velferðar og hagsældar allra Íslendinga.

Í yfirlýsingu forseta 2. september 2009 er kveðið á um að lausn deilunnar þurfi að „taka mið af sanngjörnum rétti þjóðarinnar, hagsmunum Íslendinga á komandi árum og alþjóðlegri samábyrgð.“

Að undanförnu hefur orðið æ ljósara að þjóðin þarf að vera sannfærð um að hún sjálf ráði þeirri för. Þátttaka hennar allrar í endanlegri ákvörðun er því forsenda farsællar lausnar, sátta og endurreisnar. Í ljósi alls þessa sem að framan greinir hef ég ákveðið á grundvelli 26. greinar stjórnarskrárinnar að vísa hinum nýju lögum til þjóðarinnar. Samkvæmt stjórnarskránni munu lögin engu að síður taka gildi og þjóðaratkvæðagreiðslan fara fram „svo fljótt sem kostur er“.

Verði lögin samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu, gilda þau að sjálfsögðu áfram. Verði úrslitin á annan veg, eru engu að síður áfram í gildi lög nr. 96/2009 sem Alþingi samþykkti 28. ágúst 2009 á grundvelli samkomulags við stjórnvöld í Hollandi og Bretlandi, en þau fela í sér viðurkenningu Íslendinga á skuldbindingum sínum. Þau lög voru samþykkt á Alþingi með aðkomu fjögurra þingflokka eins og tilgreint var í yfirlýsingu forseta 2. september 2009.

Nú fær þjóðin valdið og ábyrgðina í sínar hendur.

Það er einlæg von mín að þessi niðurstaða leiði til varanlegra sátta og farsældar fyrir Íslendinga um leið og hún leggi grunn að góðri sambúð við allar þjóðir.