Ólafur Þór Hauksson, sem gegnt hefur embætti sérstaks saksóknara, hefur verið skipaður sem héraðssaksóknari. Kol­brún Bene­dikts­dótt­ir hef­ur einnig verið skipuð í embætti vara­héraðssak­sókn­ara. Þetta kemur fram á vef innanríkisráðuneytisins.

Embættið verður til í kjölfar breytinga á lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum en embættið tekur til starfa þann 1. janúar n.k. Embætti sérstaks saksóknara veðrur lagt niður frá sama tíma.

Umsækjendur um embættið voru Björn Þorvaldsson, Bryndís Björk Kristjánsdóttir, Hulda Elsa Björgvinsdóttir, Jón H. Snorrason og Ólafur Hauksson,