Samkomulag hefur orðið um það milli eigenda Árvakurs hf. og Ólafs Þ. Stephensen, ritstjóra Morgunblaðsins, að hann láti af störfum hjá fyrirtækinu í dag að því er segir í tilkynningu.

Þar segir ennfremur að ástæðan fyrir brotthvarfi Ólafs séu mismunandi áherzlur varðandi ritstjórn og rekstur Morgunblaðsins sem meðal annars hafa komið fram við stefnumótun og endurskipulagningu á starfsemi Árvakurs.

Nýr ritstjóri verður ráðinn svo fljótt sem kostur er segir í tilkynningu og þar segir ennfremur að ekki standi til að tjá sig frekar um málið við fjölmiðla!