Ólafur Teitur Guðnason hefur í dag látið af störfum sem fjölmiðlafulltrúi Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. að eigin ósk að því er kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Ég vil nota tækifærið og þakka starfsfólki Straums fyrir ákaflega ánægjulega samvinnu. Það er eftirsjá að þessum góða vinnustað en nú taka við ný verkefni,“ segir Ólafur Teitur í tilkynningunni.

Við fjölmiðlasamskiptum Straums tekur Georg Andersen, forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs bankans.