Félag atvinnurekenda (FA) segir að regluverk hér á landi komi í veg fyrir að neytendur hagnist á hagstæðri þróun innflutningsverðs á búvörum. Þetta kemur fram á vef félagsins .

Þar segir að atvinnuvegaráðuneytið hafi hækkað tolla, sem leggist á innflutningskvóta á búvörum samkvæmt WTO-samningnum, um ríflega 7%. Tollarnir vegi þungt í verðmyndun innfluttrar búvöru og hækkun þeirra muni að öllum líkindum þýða verðhækkun til neytenda.

FA segir að magntollarnir á búvörur sem flytja megi inn samkvæmt WTO-samningnum hækki um 7,1 til 7,5 prósent frá fyrra ári. Hækkun tollanna styðjist væntanlega við ákvæði tollalaga þar sem landbúnaðarráðherra sé heimilað að leggja á tollkvóta magntoll, sem nemi mismuninum á ríkjandi heildsöluverði viðkomandi vöru á innanlands markaði og innflutningsverði.

„Gölluð og fráleit“ löggjöf

„Þessi lagaregla er sett til verndar innlendum framleiðendum og þýðir í raun að lækki innflutningsverð búvöru jafnar ríkið það út með því að hækka tollinn. Ef heildsöluverð innlendra birgja hækkar eltir ríkið það jafnframt með tollahækkun sem gerir innflutninginn dýrari. Þannig er komið í veg fyrir að neytendur hagnist á hagstæðri þróun innflutningsverðs,“ segir í umfjöllun FA.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að þessar tollahækkanir nú sýni hvað löggjöfin um innflutning búvöru sé gölluð og fráleit.

„Á tíma þegar allir ættu að leggjast á eitt að halda verðhækkunum í skefjum til að auka kaupmátt og tryggja ávinning nýgerðra kjarasamninga hækkar ríkið álögur á innfluttar búvörur. Það er ekki nóg með að matartollar séu undanskildir í áformum stjórnvalda um niðurfellingu tolla, þeir eru beinlínis hækkaðir. Þetta kerfi æpir á endurskoðun,“ segir Ólafur.