Sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, telur að sú ákvörðun Gests Jónssonar og Ragnars H. Hall, verjenda í Al Thani-málinu svokallaða, að mæta ekki í réttinn í dag gæti kallað á breytingar á sakamálalögum. Annars sé búið að opna sakborningum leið til þess að fresta málum sínum út í hið óendanlega. Rætt er við hann í Fréttablaðinu í dag.

Ólafur tekur fram að enn eigi eftir að koma í ljós hvort verjendurnir standi við yfirlýsingar sínar og láti ekki sjá sig í dómsalnum. Ragnar hefur lýst því afdráttarlaust yfir og Gestur hefur sagt hið sama við vb.is.

Ólafur segir að verði málinu frestað, eins og allt stefnir í, bjóði það upp á að verjendur sakborninga, og svo eftirmenn þeirra, segi sig ítrekað frá sama málinu til að fá því frestað. "Þá er búið að gefa ákveðinn tón og gæti leitt til þess að menn þyrftu að breyta lögum til að girða fyrir þetta," segir Ólafur.