Ólafur Ólafsson, aðaleigandi Samskipa,  sendi fyrir stundu frá sér fréttatilkynningu þar sem hann gerir að umfjöllunarefni erlend fyrirtæki í hans eigu sem unfanfarið hefur verið fjallað um í íslenskum fjölmiðlum. Segir hann upplýsingar um félög hans vera opinber gögn sem nálgast megi í fyrirtækjaskrám þeirra landa sem þau hafa starfsemi í.

Í tilkynningunni segir að frá árinu 2005 hafi hann verið búsettur erlendis, fyrst með heimili á Englandi en í Sviss frá 2009.  Bendir hann á að langstærstur hluti starfsemi hans sé utan Íslands. „Ég kem að rekstri fjölda fyrirtækja erlendis sem veita hátt í 2000 manns atvinnu. Þar má nefna nefna félögin KIMI SARL í Lúxemborg og Neptune Holding BV í Hollandi sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag,” ritar hann.

Ólafur vísar til þess að KIMI hafi meðal annars staðið að hjálparstarfi með uppbyggingu á fiskvinnslu og löndunarstöðvum í Sierra Leone í Afriku en um sé að ræða umfangsmesta og metnaðarfyllsta þróunarstarf í sjávarútvegi í landinu. Verkefnið sé unnið í samstarfi við Aurora velgjörðarsjóð hann hafi starfrækt ásamt konu sinni frá árinu 2007.

Þá ritar Ólafur að í gegnum félagið Neptune Holding hafi verið fjárfest í sjávarútvegi utan Íslands. Nefnir hann þar fyrirtækið Asia Seafood, sem sé með móðurfélag á Íslandi og kaupir sjávarafurðir af útgerðum við Kyrrahafið, til vinnslu og sölu á markaði í Asíu og Bandaríkjunum. „Fyrirtækið veltir árlega yfir 200 milljónum Bandaríkjadala (tæpum 29 milljörðum króna). Neptune Holding hefur einnig fjárfest í Lumar Seafood á Spáni sem rekur sérhæfða verksmiðju sem framleiðir hágæða fiskrétti og túnfisk til sölu í Evrópu. Þá á Neptune einnig línuveiðiskipið Ana Barral sem  hefur stundað veiðar á Indlandshafi.”

Ólafur segir að árið 2013 hafi KIMI lagt 350 þúsund evrur til fjárfestingar á Íslandi. Megin þorri þeirra fjármuna hafi farið til uppbyggingar á eldhúsi og stækkunar Landnámssetursins í Borgarnesi.